Sagan // The story

Velkomin í hárheim THEA. 

THEA framleiðir vörur sem einfalda hárumhirðu og færa gleði og raunverulegar lausnir við algengum vandamálum þegar kemur að hári.

Eigandi, hönnuður og stofnandi THEA er bókahöfundurinn, hárgreiðslukonan og vöruhönnuðurinn Theodóra Mjöll.

Draumur hennar um að einfalda og betrumbæta hárumhirðu hefur verið hennar helsta viðfangsefni frá því löngu áður en hún gerði sína fyrstu hárbók, Hárið árið 2012.

Flest erum við upptekin, svo upptekin að við miklum hárumhirðu fyrir okkur. Við erum að kljást við flatan hnakka, olíukenndan hársvörð, flösu, spennur sem festast ekki nógu vel í hárinu, þurra enda og þar fram eftir götunum. Markmið THEA er að framleiða vörur sem einfalda líf okkar og færa gleði og raunverulegar lausnir við algengum vandamálum þegar kemur að hári. 

Fyrstu vörur THEA sjáið þið á síðunni en spennið sætisólarnar, því fleiri vörur eru alltaf á leiðinni.